|
|
|
|
Höfundur: Gśsti
|
|
sunnudagur, 25 mars 2007 |
|
Senn lķšur aš vori og eftir langar og strangar ęfingar į Žorranum fer senn aš renna upp sś stund aš menn fara aš sprikla į išagręnum tśnum.
Ég vil nś meina aš ég hafi veriš sęmilega duglegur aš ęfa žaš sem af er vetri, mišaš viš žaš aš hafa Egil Daša né ašra įhyggjufulla Magnamenn ekki hangandi yfir mér kvartandi undan lélegri ęfingarsókn. Ég verš nś aš višurkenna aš einn eftirmišdag var ég staddur į Akureyri og hugšist męta į ęfingu, en tafšist ķ nįgrenni Sķšuskóla viš rannsóknir mķna į börnum į grunnskólaaldri, en ég hef veriš aš rannsaka nemendur į Breišuvķk og Skagaströnd undanfarin misseri og hef ég fengiš rós ķ hnappagatiš fyrir vel unnin störf.
Žar sem ég hef aš mestu leyti lokiš rannsóknum mķnum hefurinn hugurinn reikaš aftur aš knattspyrnuiškun, en sś hugsun er įstęša žess aš ég rita žennan afsökunarpistil. Žaš tekur mikiš į aš skrifa žessi orš meš 12p letri meš 1,5 lķnubili ķ word innķ IBM-tölvuna mķna, en ég hef tekiš žį erfišu įkvöršun aš yfirgefa Magna-lišiš. Aš sjįflsögšu höfšu tylft liša samband viš mig, enda flest liš į landinu aš reyna rķfa upp ašsókn į leiki sķna og kem ég žar sterkur inn og beita žar žokka og glęsileika mķnum, jafnt innan vallar sem utan. En nišurstašan er sś aš ég mun ganga til lišs viš mķna gömlu félaga ķ Tindastól. Ég biš ykkur Magnamenn aš fyrirgefa mér, en met mikils žį vinįttu sem žiš hafiš sżnt mér. Žannig er mįl meš vexti aš ég er žannig śr garši geršur aš ég reyni aš halda ķ žį fįu vini sem ég į. En įhyggur mķnar af föšurlandssvikum dvķnušu til muna er ég sį aš nįgranni minn og fyrrum lišsfélagi, Įsgeir Örn hafši gengiš til lišs viš Hvöt į Blöndu-dós. Žaš er fįtt ķ žessum heimi sem toppar žaš, svo ég uni sįttur viš mitt.
Eins og skįldiš sagši einu sinni Magnamašur, įvallt Magnamašur... |
|
Höfundur: Gśsti
|
|
föstudagur, 12 janśar 2007 |
|
Nú er lífið aftur að komast í eðlilegt horf eftir mikil hátíðarhöld. Ég hef því ákveðið að velta fyrir mér hvernig við Íslendingar höldum uppá fæðingu Frelsarans. Íslendingar eru rosalega tískulega sinnaðir, það er alltaf eitthvað í tísku fyrir hver jól. Sumar þessara tískubylgna festa sig í sessi sem árlegir viðburðir eins, í því má nefna jólahlaðborð og jólaglögg. Sem eru dulbúin fyllerí fyrir skammdegis- og vinnuþreyttan landann. Í fyrra var það ýmis framandi matur sem þótti mjög cool að hafa í matinn, eins og krókódílakjöt, kengúrukjöt o.s.fv. Þotuliðinu þótti orðið heldur klént að hafa hangikjöt og svínahamborgarahrygg enn ein jólin. Í ár var engin undantekning hvað varðar tískubylgju um jól og áramót. Ég veit ekki hvort fleiri en ég hafa tekið eftir þessu en enginn var maður með mönnum nema að skella sér á Kanarí. Ekki veit ég hvort landinn er orðinn þreyttur á þessum löngu og hörðu vetrum, sem eru hættir að koma? Nei, það hefur verið haust á Íslandi síðan 2001 og þurfa því ekki að flýja í sólina á Þessum árstíma frekar en öðrum. Hvað er samt jólalegt við jóla á kanarí? Sandur, hiti, sviti, sígarettustubbar á milli tána á sóðalegum ströndum, sandkría og bjór. Er fólk að leita eftir nýjum jólaanda eftir að hafa sökkt sér í neyslufylleí undanfarinna ára og orðin þreytt á að arka í Kringlunni/Smáralind eða finnst það bara ekki flott lengur.
Ágúst Ingi Ágústsson P.s. Strákar nú er mikilvægt að allir leggja hönd á plóg og bjarga Útvarp kantrýbæ úr fjarhagsörðuleikum. -Koma Reimar brjóta sparibaukinn. |
|
Höfundur: Gśsti
|
|
mišvikudagur, 13 desember 2006 |
Desembermánuður er runninn upp og það dylst fáum með óvirkum skreytingum skammdegisþungra Íslendinga. Snillingur þessi maður sem uppgötvaði þessi ljós og skreytingar sem lýsa upp skammdegið. Talandi um skammdegi þá er kuldinn ekki langt undan allavega er nóg af hvoru tveggja hérna við norðaustan verðan Húnaflóann n.t.t. á Skagaströnd, vöggu kántrýtónlistar á Íslandi. En fyrir nokkrum dögum er ég var staddur í kjörbúðinni á Skagaströnd að kaupa mér næringu í löngu frímínútunum sá birtist mér frelsari skammdegis og kulda og færði mér heilagan boðskap, eða fréttir af Magnaliðinu. Þetta var enginn annar en Stefán Pálmason formaður vor. En merkilegt er hvað lifnar yfir afgreiðslustúlkunum á Skagaströnd þegar formaðurinn kemur inn. Stefán færði þær fréttir helstar að sennilega myndi Magni skrá sig í 2. deildina í körfubolta á næsta ári því ekki næðum við í handboltalið miðað við æfingasókn undanfarna daga. Hef ég haft miklar áhyggjur af þessum tíðindum og vona að þið Magnamenn sem lesið þetta brettir nú upp ermar og fylgið 3-amigos Reimari, Atla og Stebba út að hlaupa. Það er ljótt ef hægt er að halda stjórnarfund með þjálfaranum á skokkinu því enginn leikmaður mætir. Er erfðaprinsinn frá Grenivík í endalausri brúðkaupsferð, hvar eru (kvið) mágarnir, Þórður húsvörður, álmúsinn áhyggufulla og David Beckham. Koma strákar förum að taka á þessu.
Kveðja frá höfuðstað Húnavatnssýslu, Skagaströnd. Ágúst Ingi Ágústsson
|
|
Höfundur: Gśsti
|
|
žrišjudagur, 15 įgśst 2006 |
Vorið 1991 var Magic Johnson, leikmaður Los Angels Lakers, áhalds leikmaður minn í NBA atvinnumannadeildinni í körfubolta í Bandaríkjunum.. Það sumar komust hann og hans félagar í Lakers í úrslitarimmu á móti Chicago Bulls. Í Bulls voru leikmenn á borð við Michael Jordan og Scottie Pippen.. Lakers töpuðu einvíginu 4-1 og áttu þeir Bulls bræður frábæru gengi að fagna eins og komandi tímabilum og urðu meistarar þrjú ár í röö. Haustið 1991, þegar undirritaður var 9 ára bjóst hann við góðu gengi sinna liðsfélaga í Los Angels Lakers sem Magic lék með. Sú varð nú miöur ekki rauninn, Tröframaðurinn hélt þann dramatíska fréttamannafund í sögu íþótttanna. Ég fé enn tár auunn er ég hugsa til þessarra stundar. Þegar snillingur tilkynnti heiminum að hann væri sýktur HVI-eyðniveirunni. Undirritaður, einn mesti karlmaður sem staðið hefur í marki Magna á Grenivík, felldi tár,..- 9 ára gamall fyrir framan allt og alla. Ekki vissi ég mikið um veiruna sjálfur og spurði því foreldra mína hvað þetta þýddi. Þau útskýrðu fyrir mér í varfærni að uppáhaldsíþróttamaðurinn minn ætti 9-10 ár ólifað.
Nú er árið 2006 og maðurinn ekki dáinn. Læknavísindunum hefur augljóslega flogið fram, en af hverju hefur þessi veiki maður verið alls staðar þar sem hundur hefur rekið við sem snert hefur körfubolta síðustu 15 ár? Margir eyðnisjúklingar hafa dáið á þessum tíma, margir hafa smitast, enn haggast Magic. Hann er alltaf í jakkafötunum sínum upp í stúku að horfa mikilvæga leiki. Er Magic Johnson með Eyðniveirunna eða var hann bara ein stór auglýsing fyrir þann alheimsvanda sem við heiminum blasti. Var Freddie Mercury ekki nógu þekktur, þurfti einhvern ósýktan til að hrista upp í liðinnu? Maður spyr sig….
|
|
Höfundur: Gśsti
|
|
laugardagur, 08 jślķ 2006 |
Reglulega eru þættir í sjónvarpi, greinar í tímaritum og blöðum og jafnvel skrifaðar heilur bækurnar um muninn á körlum og konum. Fyrir utan líkamlegan og augljósan mismun á kynjunum hef ég velt fyrir mér þessum eintökum af homo sapiens. Fyrsta sem mér dettur í hug er þegar par, karl og kona fara saman í fína veislu eins og brúðkaup. Karlpeningurinn er um 5 mínútur að klæða sig og 10 mín að gera okkur ballfæra. Okkur er alveg sama þótt við förum í sömu fötunum veislu eftir veislu. Konan eyðir a.m.k. viku í að ákveða hvernig hún að vera klædd svo þarf að vanda valið á klæðunum því það er ekki sniðugt að vera eins klædd og einhver vinkona sín. Engin kona má vera eins í stórveislum. Þeim konum sem lenda í því að vera eins klæddum líður illa og allar hinar konurnar eru að hvísla sín á milli um að Gulla og Silla séu eins klæddar. En samt eru konur alla mannfagnaði að hæla hverri annarri hversu vel klædddar þær eru. Hvaða sæmilega gagnkynhneigða karlmanni er ekki sama þó Stína og Bibba séu í eins rauðum kjól í brúðkaupinu hjá Dóra á Steini og Gurru Sighvats. En snilldin í þessu er að við karlmennirnir eru alltaf eins klæddir, í jakkafötum sem öll eru eins í sniðinu.Aldrei hef ég farið í partý, veislu eða brúðkaup þar sem karlmenn spá í hvernig aðrir karlmenn eru klæddir. Kannski brandarar eins og: nýjar buxur eða stærra tippi lýsi áhuga karlmannna og klæðaburði annara karlmanna. Ekki mikill tími fer í snyrta sig fyrir venjulegan karlmannn þegar halda skal til veislu eða á vinafund, en hitt kynið það tekur nokkur andartök í þetta. Þær kýtta og sparsla í töluverðan tíma og nokkrum klukkutímum er eydd í hárgreiðsluna. Annað sem ég hef tekið eftir síðan ég fór að skoða konur fyrir 23-24 árum að þær eru alltaf með litlar töskur hvert sem þær fara. Annað hvort á öxlinni eða halda bara á þeim. Þessar töskur kalla þær veski, -það er ekki rétt. Veski er hlutur sem maður geymir peninga og kort í og hefur í vasanum. Ég hef aldrei séð karl með svona tösku. Til að svala forvitni minni kíkti ég einu sinni ofan í svona kvennmannsveski og vitir menn í þessum töskum geyma konurnar allt, t.d. karlmannsveski, lykla, síma, maskara, kinnalit, eyeliner og dömubindi. Á einu augabragði sá ég að þessar buddur eru kvennstofninum ómissandi. En við höfum ekkert að gera með svona því 2-3 smokkar komast hæglega í vasann.
Þar sem HM í knattspyrnu fer núna fram í Þýskalandi vil ég tileinka þennan pistill Oliver Kahn, en við höfum verið í beinu sambandi alla keppnina og hef ég verið að gefa honum góð ráð hvernig er að vera góður markmaður á bekknum.
Ágúst Ingi Ágústsson
-- |
| | << Byrja < Fyrri 1 2 3 Nęsta > Sķšasta >>
| | Nišurstöšur 1 - 9 af 20 |
|
|
|
|
Nęsti leikur |
|
Magni - 2.fl KA 6.feb kl: 21:oo-22:oo Boginn
|
|
Skrįšir notendur: 308
Fréttir: 730
Tenglar: 33
Heimsóknir: 2774312
|
|
|